Skólinn
er ætlaður fyrir þá sem vilja öðlast dýpri skilning
á sinni andlegri vinnu og byggir Auður kennsluna upp
á því að hver þáttakandi fái sem mest útúr náminu..
Hún leiðbeinir þér að finna þá leið sem hentar best
fyrir þig og kemur þér af stað með því að byggja
góðan grunn á þeirri
braut.
Leggur Auður því áherslu á að nemar
stundi námið af alúð og leggi sig fram.
í skólanum lærir þú:
- Á öll helstu spilin sem eru notuð í lestri s.s
Tarot-, Engla- og Sígaunaspil
- Hver er minn farvegur
- Hvernig ég vinn með leiðbeinendum mínum
- Hvernig eru upplýsingarnar að koma til mín
- Hvernig vil ég koma skilaboðunum frá mér
Að náminu loknu munt þú hafa öðlast sterkari
tengingar við leiðbeinendur þína, dýpri skilning á
spilunum, meira öryggi við lestur þeirra og fá aukna
sýn á þína andlegu hæfileika.
Kærleikssetrið. 7. október til 16. desember.
Kennt er á miðvikudögum kl. 20:00–22:00